Jan 14, 2004
S'iminn minn er týndur!!!

frh af því sem var....

innum glugga, og stórslasaði mig!!! svo fór ég nú bara í bælið og sofnaði, að vísu kom nú hún árný vinkona mín og gisti hjá okkur og
var það miIIIIIkið stuð!! geggjað kvöld þarna á ferðinni


ÁramótaballIÐ!!!

einsog hefð er fyrir er áramótaball á Seyðisfirði (tek það fram að það er ekki slíkt á Fásk ;p )

Byrjaði gleðin með eindæmum vel þegar við ætluðum að skjóta upp flugeldunum, og bróður mínum honum Klemensi vanntaði stjörnuljós til að kveikja í draslinu, og hún amma þóttist nú eiga stjörnuljós, og kemur hún út með þau og kveikjir á einu, en ekkert gerist, var þá konan greinilega búin að fá sér aðeins að drekka (þá meina ég áfengan drykk semsagt) og hélt á reykkelsi!   góður!!! en svo um 12 leytið kíkti ég yfir til ömmu og afa Karenar og fékk þar jarðarberjakampavín og læti, síðan fórum við stöllur heim til urðar að mála okkur eða setja á okkur andlitið og var hún Sandra Hrafnhildur þar einnig, fórum síðan til Begga í "PARTÝ" þar sem fólk sat og sötraði bjór og horfði á best of 70 mín!!!! fórum síðan á ball og það var GEGGJAÐ!!!   Meistaraflokkur Karla var að gera góða hluti... einsog alltaf =) og voru strákarnir með dragsjóv!  sem var geggjað og tók stelpan myndir sem fólk getur fengið að skoða..... og fórum við svooo í eftirpartý aftur til Begga og var mín orðin létt og gerði skandall með símann hans Gunnars Sveins og biðst ég hér með afsökunar á því ;)

en ég verð nú að fara að sofa krakkar mínir, skóli á morgun..... skrifa mikið seinna ;)

Posted at 03:10 pm by sigfrid
Comments (1)

Dec 23, 2003
lísa maren..mitt seinasta blogg

já ég held að þetta blogg á síðunni hennar Sigfríðar verið mitt síðasta því að systir mín hún maggy var að hjálpa mér að gera mitt eigið blogg :) sem verður vonandi skemmtilegt :)hehe

en ég gæti komið og sagt einhverja skemmtilega sögu um Ciggy á þessu bloggi hennar einhverntíman hver veit ??:)

Posted at 12:51 pm by sigfrid
Make a comment

Dec 21, 2003
Sorry krakkar....

... en eins og ég hef sagt áður þá bý ég ekki yfir þeim miklu gæðum að komast á internetið í heimakynnum mínum þannig að þið verðið bara að vera þolinmóð.....

en það sem er búið að gerast síðan síðast.... er

STUÐMANNABALL!!

þar var fólk að skemmta sér ærlega, byrjuðum á að fara í partý hjá Þórey Birnu (fyrir klukkan hálf 10) þar voru allir að horfa á lygalaupur (einsog þessi mynd var svo listilega þýdd á st-ð 1!!)  eða liar liar einsog fólk kýs víst að kalla hana.... en fór nú síðan stúlkan úr partýinu og skildi bara Lísu Marenog Urði eftir í þessu dúndurstuði, kíkti ég með Sonju Björk einn rúngt og ákváðum við að kíkja á KHB að sötra einn björ og fleira þess kyns.... og vorum við bara þar þangað til við fórum á ball.... Andri og Billi voru að trúbba og héldu uppi stuðinu áður en á ball var haldið... síðan byrjaði taumlaus gleði... dansaði við ekki ómerkilegri menn en Hauk Bauk... og Fjalar.... ógurlegan vin minn síðan í Herjólfi á leiðinni á þjóðhátíð 2002......fór síðan heim að sofa.... hrundi að vísu skemmtilega í glólfið þegar ég var að koma mér innum glugga....... tala seinna.....mamma að rekas á eftir mér....

Posted at 10:05 am by sigfrid
Comments (1)

Dec 11, 2003
Jæja...1 dagur síðan MUSE...

ætla ekki að skrifa mikið núna... sökum þess að stelpan er að fara í dönskupróf á morgun...

en samt verð ég nú að segja e-ð...  t.d vill ég byrja á því að þakka þeim sem hringdu í mig af MUSE.. þetta eru sannir vinir og munu eflaust fá sitthvað dýrari jólapakka en hinir aumingjarnir sem voru líka á muse en hringdu ekki ;) nema Steinar Pálmi... hann er undantekning!
     Gaman samt að segja frá því að einhver hringdi og það kom talhólfið mitt þannig að nú á ég muse live inná talhólfinu mínu... mjög óskýrt (en samt hægt að syngja með ;p)  þannig að þeir sem hafa áhuga geta fengið að hlusta á þetta hjá mér ;)

en nóg um þetta
  ég verð að fara að snúa mér aftur að lærdóminum =)


    p.s mamma ég elska þig =) 

komst að því að mamma les bloggið mitt ;) gaman að segja frá því :)

Posted at 12:26 pm by sigfrid
Comments (2)

Dec 9, 2003
1 dagur í MuSe krakkar mínir....

en einsog ég hef svo oft áður sagt þá er ég ekki að fara...

en nóg um það, það gengur ekki að grenja útaf því að eilífu... samgleðst hér með fólkinu sem hefur hlotnast þann heiður að fara....

en annars er lítið búið að gerast hjá mér síðastliðnu daga...skellti mér að vísu á eitt ball eða svo með NEFNDINNI.... EDRÚ.... sökum þess að stelpan var driver....
    Herra ME er nú e-ð að þykjast vera merkilegur hérna... í alltof stórri RAUÐRI peysu og er þrútinn um augun, einsog margur mennskælingurinn sem var að ljúka prófi....

ég verð að fá að skrifa meira seinna... timinn rennur bara frá manni....

þangað til næst..
 og krakkar sem eruð að fara á Muse... þið hafið ekkert betra að gera en að eyða smá inneign í mig og leyfa mér að vera hjá ykkur í huganum á tónleikunum =)

Posted at 01:43 am by sigfrid
Make a comment

Dec 7, 2003
written by lisa maren part 3

Mig langar að deila með ykkur  draumi og svolitlu sem gerðist í alvörunni hér kemur það :

Sko mig dreymdi draum í nótt þar sem ég vann ferð fyrir 4 til ítaliu en ég ætla ekkert að fara að segja ykkur neitt meira frá þessum draumi ! sko þegar ég vaknaði í morgun þá fór ég að rifja upp drauminn og þar sem ég vinn voða sjaldan eitthvað að þá fannst mer þetta nú bara ágætis draumur en aftur á móti er hún Maggý systir mín alltaf að vinna eitthvað og þá fór ég að hugsa um það fyrsta sem ég vann og það var stór konfektkassi Maggý hélt stórt afmæli í Herðubreið þegar hún var 12 ára eða eitthvað og það voru sko geggjað margir í þessu afmæli en allavega þá var Bingó eða eitthvað og allir voru með í því og það voru glæsilegir vinningar í boði :) svo alltíeinu´þá fékk ég Bingó ! ég var ekkert smá glöð með það og lét pabba fara vel yfir Bingó spjaldið mitt :) og kom það svo í ljós að konan hafði unnið þettan stóra konfektkassa mer til mikillar gleði (þar sem ég elska allt nammi :)) en hún Margrét var sko ekki sátt en ég fór heim með konfektkassann stóra og faldi hann vel inn í herbergi svo að hún mundi nú örugglega ekki borða allt frá mér ! svo fór eg nú bara eitthvað út að leika og kom svo aftur inn þá sá ég að Maggý hélt á kassanum stóra og ég komin með kökkin í hálsinn því að ég helt nottla að hún væri búin að borða allt en þá sagði hún "Lísa mín má ég nokkuð fá smá hjá  þér" og ég sagði nottla strax nei því að ég ætlaði sko að borða allt sjálf og ekki gefa henni neitt því að ef hún hefði unnið stóra konfektkassan að þá er ekki séns að hún hefði gefið mér eitthvað ekki séns!!!!! en eftir að ég var búin að segja nei við hana haldið þið þá ekki að konan hafi sest á stóra kassan og PRUMPAÐ á hann já það er ekkert djók skal ég segja ykkur !! hún í alvöru prumpaði á stóra kassan og ég var ekki búin að borða 1 mola !! og eg gat sko ekki hugsað mer að borða 1 mola úr stóra kassanum eftir að hún væir búin að prumpa á hann þannig að ég gaf henni bara allann kassan !! já allan heilan kassann !!
 
já svona er nú systir mín klikkuð !:)

Posted at 03:13 pm by sigfrid
Comments (7)

Dec 5, 2003
written by lisa maren part 2

Já góðan daginn hvað segið þið svo? Já ég er komin heim í fjörðinn fagra ég fékk far með ágætum manni friðjón að nafni og er hann ágætis drengur :) en ég komst að því að ég er alveg glötuð að halda uppi samræðum! sem er alls ekki nógu gott eg hef tekið mjög mikið eftir þessu eftir að eg byrjaði í skólanum! já hvað er málið? nei ég spyr! það tók okkur svona 20 min að keyra heim og á þessum 20 min töluðum við saman í svona 5min sem er alls ekki nógu gott !!hver vill kenna mer að halda uppi samræðum?í leiðinni má hann lika kenna mér smá í stærðfræði það væri mjög svo gott :)

en svo meiga allir koma í heimsókn í herb.308 og skrifa í gestabókina okkar! já hún sigfríð er búin að búa til gestabók sem er mjög flott og eru þá nokkrir merkilegir menn búinir að skrifa í hana t.d. ... jahh ég man ekki eftir neinum akkurat í augnablikinu nema einum manni sem er jú nokkuð merkilegur gaui Tiger að nafni

þá hef ég þetta ekki lengra í bili skemmtið ykkur yfir próflestrinum krakkar minir :)

Posted at 03:59 am by sigfrid
Comments (5)

Dec 4, 2003
6 dagar í MUSE... og ég fer ekki....

Ég gleymdi víst að nefna það í gær að Stelpan byrjaði víst að syngja með útvarpinu á meðan við tókum rúntinn með Pása.... en Íris góðvinkona mín... og okkar allra sagði mér það... ekki tók stelpan eftir þessu sjálf... en jæja....
        Skrifa e-ð seinna.... PrÓf!!!!

p.s Ingimar er Auli!!!

Posted at 02:24 pm by sigfrid
Make a comment

Dec 3, 2003
written by lisa maren

já góða kvöldið já eins og sigfríð segir þá hefur hún ráðið mig til þess að að rita á bloggið hennar eins oft og ég hef tíma en því miður þá hef ég ekki það oft lausan tima að ég geti sest niður við tölvuna og ritað nokkur orð fyrir lesendur en ég mun reyna :) Við sigfríð ætluðum að byrja að blogga í byrjun skólans en það varð aldrei neitt úr því venga leti :) en sigfríð eða Ciggy eins og við Englendingarnir viljum kalla hana tók sig á og hætti að vera löt og byrjaði að blogga gott hjá þér Ciggy mín ;) ég ætla bara að vera stutt orð að þessu sinni (getur líka verið það að Man Utd eru að keppa núna og ég er að missa af því) og kveð í bili þið eigið eftir að heyra í mer flótt aftur !:) en ég vil benda fólki á það að stafsetnigar reglur eru ekki liðnar hjá mer þannig að ég skrifa bara eins og ég skrifa enþað  er vonanadi allt í góðu með það :)

ég vil einnig eigna mer allann heiðurinn á því að hafa spilað lagið sem ciggy, lisa leifs og hrefna gerðu geysi vinsælt hér um árið ;)
þangað til næst..

Posted at 12:11 pm by sigfrid
Comments (4)

Getstabloggari.......

jæja ég er komin með gestabloggara og það er PRINSESSAN hún Lísa Maren (bitchslap einsog ég kýs að kalla hana þessa dagana ;p )  vona að hún geri mig ekki að fíbbli.....

Posted at 11:58 am by sigfrid
Make a comment

Next Page





   
<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

Urður Systir mín

Guðrún "knulle" Veiga

Hildur KA

Sara Florida

Gummi Jóns

Meistarinn

Björt

Maggý Mús

Jón Kolb1

Sandra Afríkubarn ;)


Glæsimaðurinn og Djammarinn

Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here: